Signature InnSæi Námskeiðið

 

 

InnSæi Signature Námskeiðið er níu vikna spennandi og gefandi upplifun þar sem þú lærir að byggja upp sjálfstraust og vald á innsæinu; sem er ein helsta uppsprettan fyrir skýra hugsun, starfsorku, stefnu í lífinu og góðar ákvarðanir. Námskeiðið fer fram í hinni fullkomnu blöndu af sjálfsnámi, samtölum og leiðsögn í rauntíma.  

Ég lofa þér þremur útkomum; þú munt falla fyrir InnSæinu þínu, þinn þína leið og fólk og  leiða og taka ákvarðanir af meira sjálfsöryggi, ró og skýrleika.”

❂  Kennari: Hrund Gunnsteinsdóttir

❂  Lengd námskeiðs: 9 vikur

❂  Færni: Betri ákvarðanataka og dómgreind, leiðtogahæfni, skapandi og lausnamiðuð hugsun, seigla og aukið sjálfstraust á tímum óvissu og breytinga.

Afurðir og verkefni: Þinn eigin InnSæi prófíll. Leiðsögn frá Hrund. Persónuleg endurgjöf og útskriftarskírteini í lok námskeið.

1950 

Signature InnSæi Námskeiðið

InnSæi Signature Námskeiðið er níu vikna spennandi og gefandi upplifun þar sem þú lærir að byggja upp sjálfstraust og vald á innsæinu; sem er ein helsta uppsprettan fyrir skýra hugsun, starfsorku, stefnu í lífinu og góðar ákvarðanir. Námskeiðið fer fram í hinni fullkomnu blöndu af sjálfsnámi, samtölum við aðra þátttakendur og leiðsögn frá Hrund í rauntíma.  

 

„Ég hjálpa þér að skerpa þinn innri áttavita með því að efla bæði sjálfstraust og vald á innsæinu; sem er ein helsta uppsprettan fyrir skýra hugsun, starfsorku, stefnu í lífinu og góðar ákvarðanir.

 

Við höfum nú aðgang að áður óþekktu magni af gögnum og upplýsingum sem berast okkur á ógnahraða á öllum tímum dags. Tækniþróun eins og gervigreindin og margvíslegar áskoranir verða til þess að magna upp hraða og umfang breytinga, frá efnahagslegum og pólitískum breytingum til upplýsingaflæðis, sem gerir okkur erfiðara fyrir að sjá heildarmyndina, aðlagast og tengja inn á við.

Í þessum heimi óvissu og hraða þurfum við meira en rökhugsun og töluleg gögn til að sigla rétta leið og taka ígrundaðar ákvarðanir. Við þurfum sterkan innri áttavita – vel þjálfað innsæi.

En hvað er innsæi? Getum við treyst á það? Hvernig hjálpar það okkur að taka betri ákvarðanir? Hvernig getur innsæi hjálpað okkur að lifa lífinu til fulls og feta okkar eigin slóð? Hvernig getur innsæi gert þig að betri leiðtoga, félaga og vini? Hvernig getur innsæi hjálpað þér að skerpa þinn innri áttavita? Af hverju er vel þjálfað innsæið afgerandi styrkleiki fyrir þig í heiminum í dag? 

Á þessu námskeiði lærir þú allt sem þig hefur einhvern tíma langað að vita, eða vissir ekki að þú þyrftir að vita, um innsæi í gegnum linsu InnSæis, íslensku hugtaksins og leiðarvísisins fyrir vel þjálfað innsæi. Í lok námskeiðsins verður þú komin með sterkari innri áttavita sem er mikilvægur til að sigla fimlega og af styrk í gegnum lífsins ólgusjó, breytingar, samskipti og starfsferil. 

Að breyta sambandinu þínu við innsæið í gegnum InnSæi, mun breyta lífi þínu.

Samantekt um námskeiðið:

❂   9 Vikur
❂   27 Lyklar að innsæi
❂   15 Kennslustundir
❂   3 Fundir í rauntíma
❂   14 Æfingar
❂   19 Skjöl og síður fyrir þína handbók
❂   Einstaklingsmiðuð endurgjöf á þitt InnSæi ferðalag á námskeiðinu
❂   Lokaverkefni – Þinn InnSæi Prófíll, þitt eigið GPS tæki til að stilla þig inn á innsæið.

 

Það sem þú munt læra:

  • Ákvarðanatöka með meiri breidd og dýpt
    Greindu kjarnann frá hisminu í upplýsingaóreiðu og taktu hvert skref af meira sjálfstrausti á eigin dómgreind, –  jafnvel á tímum óvissu. Taktu jarðtengdar ákvarðanir, blandaðu saman gögnum og greiningu við innsæi og skynjun.
  • Skapandi sjálfstraust
    Endurvektu og efldu getuna til að nota ímyndunaraflið, sjá hlutina upp á nýtt og sigla eftir þínum einstaka áttavita.
  • Tilfinningalegur skýrleiki og sjálfstraust
    Byggðu upp betri og áreiðanlegri tengsl við þína innri rödd, sem er mikilvægur þáttur í að þjálfa innsæið.
  • Líkamleg greind og aukin meðvitund
    Nýjustu rannsóknir sýna að líkaminn geymir meiri greind en talið hefur verið. Innsæi er greind sem býr í öllum líkamanum, ekki bara heilanum. Nýttu þér ný verkfæri og aðferðir til að nema og skilja skilaboð og vísbendingar úr öllum líkamanum.
  • Framsýn leiðtogahæfni
    Færðu þig úr viðbragðsstöðu yfir í sókn sem leiðtogi og þróaðu hæfni til að nota verkfærakistu sem opnar fyrir breiðari greind og víðsýnni möguleika.

 

Það sem þú munt búa til:

Þú munt hanna þinn eigin InnSæi Prófíl, leiðsögutækið þitt eftir að námskeiðinu lýkur, undir leiðsögn Hrundar og í samtali við aðra þátttakendur.

Þú útskrifast með viðurkenningu sem staðfestir að þú hafir lokið InnSæi Signature Námskeiðinu. Þessi viðurkenning staðfestir ekki bara að þú hafir sinnt náminu af heilum hug, heldur einnig getu þína og aukna hæfni til að ná árangri, takast á við og móta vegferð þína í heimi og lífi sem er sífelldum breytingum undirorpið.

 

Þetta námskeið er fyrir þig ef:

  • Þú ert að sigla í gegnum tímabili breytinga eða óvissu persónulega eða í vinnunni
  • Þú vilt endurræsa, endurstilla og tengjast aftur þínum innri áttavita
  • Þú vilt leiða, sýna forystu og taka ákvarðanir með meira sjálfstrausti, skarpari skýrleika og minni áreynslu 
  •  Þú vilt leiða og sýna forystu innan frá og út; með bæði hjarta og heila
  • Þú hefur náð áþreifanlegum árangri út á við, og finnst tímabært að dýpka erindi þitt og skerpa röddina
  • Þú skynjar að næsta skref fyrir þig þarf að koma innan frá þér og vera meira þú

 

Skilyrði sem þarf að uppfylla og efni

Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf forvitni, opin huga og vilja til að ögra fyrirfram gefnum viðhorfum um bæði þitt innsæi og möguleika. Þú þarft að hafa dagbók við höndina, sem er algjört lykilatriði til að skerpa og stilla inn á innsæið. Fjárfestu í þér með skuldbindingu til náms og vaxtar.

Frequently Asked Questions

Is the course live or self-paced?

Both. The course includes self-paced video modules and optional live sessions with Hrund. You can choose the rhythm that works for you.

How do I access the course?

After registering, you’ll receive an email with your login details. From there, you can access all course materials through our secure learning platform — anytime, anywhere.

How long do I have to access the course?

The course is entirely on demand. Once registered, you will have access for a whole year in the course.

Will I receive feedback from my instructor?

Yes — in the Signature InnSæi Course, Hrund offers personalised feedback on your portfolio and reflective submissions.

Related products

Keep In Touch

Grow your intuition through the lens of InnSæi. Find insights, inspiration & tips on intuition that you won’t read anywhere else.

OR