Kennt á íslensku

InnSæi® Signature Námskeiðið September 2026

Ráð Hrundar geta breytt lífi þínu. Í heimi gervigreindar mun innsæið skipta sköpum fyrir þig og veita þér mikilvægt forskot

— Bill George, executive fellow hjá Harvard Business School og metsöluhöfundur True North.

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Skýrt, hagnýtt og áhrifaríkt.“

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Fór fram úr væntingum.“

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Ég nýti þetta á hverjum degi.“

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Ég mæli með þessu námskeiði fyrir alla!“

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Algjörlega ný leið til að hugsa.“

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
„Ótrúlega gefandi upplifun!“

InnSæi Signature Námskeiðið er hannað fyrir þig, ef þú vilt efla leiðtoga- og stjórnunarhæfni á tímum óvissu, gervigreindar og upplýsingaóreiðu.  Níu vikur með Hrund og þátttakendum, InnSæi® aðferðarfræðin kennd að fullu, einstaklingsbundin nálgun, aðgangur að námskeiði í 12 mánuði.

Næsta námskeið hefst 16. september 2026

„Ég lofa þér þremur útkomum; sterkari innri áttavita, betri dómgreind og skýrari sýn á tímum gervigreindar.“

Hrund Gunnsteinsdóttir

Of bissí fyrir enn eitt námskeiðið?

Námskeiðið er hannað fyrir fólk sem lifir annasömu lífi – fólk sem þráir breytingar en ekki fleiri verkefni. Ert það þú?

Lítil skref – stórar breytingar. Hver sem dagskráin er, passa æfingarnar inn í daginn þinn.

Þrír lyklar á viku. Sem þú æfir þá vikuna.

Praktískt og partur af lífinu. Þú byrjar að styrkja InnSæið frá fyrsta degi, hvað sem drífur á þína daga, á fundum, heima, í kaffipásunni, á göngu, í samskiptum við aðra.

Tempóið er vel hugsað. Þú færð hæfilegan skammt í hverri viku sem býr til kjöraðstæður fyrir innsæið þitt að vaxa og dafna.

  • Kennari: Hrund Gunnsteinsdóttir
  • Lengd námskeiðs: 9 vikur
  • Hefst 16. september
  • Sjálfsnám á tempói sem hentar þér. Í hverri viku horfir/hlustar þú á 15 mínútna myndband frá Hrund, þegar þér hentar.
  • Persónuleg leiðsögn með Hrund og samnemendum á vikulegum zoom fundum: Við hittumst á zoom á miðvikudögum kl. 12-13.
  • Færni: Skilvirkari og skýrari ákvarðanataka og dómgreind, líka þegar gögn og tíma skortir. Betri forgangsröðun undir pressu og í óreiðu. Aukin tilfinningagreind og sjálfsþekking. Leiðtogaforskot á tímum gervigreindar. Skapandi og lausnamiðuð hugsun. Aukin seigla. Betra læsi á fólk og aðstæður.
  • Afurðir og verkefni: Þinn eigin InnSæi prófíll/Þitt innra GPS tæki sem nýtist þér í framhaldinu. Persónuleg leiðsögn frá Hrund á zoom fundum. Einstakt samfélag leiðtoga og jafningja. Útskriftarskírteini í lok námskeiðs að uppfylltum skilyrðum um virka þátttöku í 80% af zoom fundum.

1650 

Ekki í sölu núna

Skráðu þig hér til að vita fyrst/ur!

 
Næsta InnSæi® Signature Námskeiðið hefst 16. september 2026. Ef þú ert tilbúin/n til að styrkja InnSæið og þinn innri áttavita, og vilt vera fyrst/ur til að fá upplýsingar, boð á frían masterclass og premium tilboð þegar við opnum fyrir skráningar, skaltu skrá þig hér. Ef þú ert ekki viss skaltu ekki hika við að senda Hrund línu, jafnvel bóka hálftíma spjall, á hallo@hrundgunnsteinsdottir.com.
 
Leiðtogar og stjórnendur frá rúmlega 20 löndum hafa klárað InnSæi Signature Námskeiðið (á ensku og íslensku). Námskeiðið fór langt fram úr vonum flestra. Sum hafa haldið áfram í 1:1 Leiðtogaþjálfun. InnSæi er ekki eins og hver önnur upplýsingagjöf, heldur leið til að lifa og leiða á öflugan, endurnærandi og hrífandi hátt.
 

Við viljum vekja athygli á að þátttakandi sem hættir í námskeiði hefur almennt ekki rétt á endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum. Ef þátttakandi þarf að hætta við þátttöku þarf afskráning að berast með tölvupósti á hallo@hrundgunnsteinsdottir.com ekki síðar en 7 dögum áður en námskeiðið hefst. 

Berist afskráning of seint eða ekki látið vita áskiljum við okkur rétt til að innheimta námskeiðsgjöldin að fullu.

Signature InnSæi Námskeiðið

InnSæi Signature Námskeiðið er níu vikna námskeið, þar sem þú eflir leiðtoga-og stjórnunarhæfni þína á tímum gervigreindar, upplýsingaóreiðu og mikilla breytinga með einstakri aðferðarfræðin InnSæi®. Í slíkum aðstæðum er vel þjálfað innsæi og sterkur innri áttaviti lykillinn að leiðtogafærni og góðri ákvarðanatöku. Námskeiðið fer fram í hinni fullkomnu blöndu af sjálfsnámi, samtölum við aðra þátttakendur og leiðsögn frá Hrund í rauntíma. Þú hefur ennfremur aðgang að námskeiðinu og öllum gögnum í 12 mánuði frá kaupum.

„Mitt markmið er að þú takir með þér skýrari hugsun, skýra stefnu í lífi og starfi. Að þú hafir sterkan innri áttavita og meira traust á eigin dómgreind – sérstaklega þegar töluleg gögn og greiningar vantar.  InnSæi® er hannað til þess.”

Við höfum nú aðgang að áður óþekktu magni af gögnum og upplýsingum sem berast okkur á ógnahraða. Gervigreindin og margvíslegar áskoranir magna upp hraða og umfang breytinga, sem gerir okkur erfiðara fyrir að sjá heildarmyndina, aðlagast og tengja inn á við.

Í þessum heimi þurfum við meira en rökhugsun og töluleg gögn. Við þurfum sterkan innri áttavita – vel þjálfað InnSæi.

En hvað er innsæi? Hvernig verður það til? Hvenær getum við treyst á það? Hvernig gefur InnSæi okkur forskot á tímum gervigreindar? Hvernig bætir það ákvarðanatöku? Líf okkar? Hvernig skapar það skýrleika í hugsun og sterka stefnu í lífi og starfi? Af hverju er vel þjálfað innsæi sérstaklega mikilvægt í dag?

Á þessu námskeiði lærir þú allt sem þig hefur einhvern tíma langað að vita, eða vissir ekki að þú þyrftir að vita, um innsæi í gegnum aðferðarfræði InnSæi®, sem Hrund hefur kennt leiðtogum um allan heim.

Að breyta sambandinu þínu við innsæið í gegnum InnSæi, mun hafa mikil áhrif á líf þitt og störf. Kynntu þér endurgjöf fyrrverandi nemenda.

9 Vikur

27 Lyklar að innsæi

9 Kennslustundir

9 Fundir í rauntíma

Aðgangur að lokuðu samfélagi fyrir þátttakendur á netinu

Fjöldi hnitmiðaðra æfinga og leiðbeininga sem þú getur safnað í eigin handbók

Þú býrð til þinn eigin InnSæi Prófíl, þitt eigið GPS tæki til að stilla þig inn á InnSæið og halda þér við efnið löngu eftir að námskeiðinu lýkur.

Aðgangur að námskeiði í 12 mánuði frá kaupum

Útskriftarskírteini (þátttaka í 80% zoom funda er skilyrði)

Aðgangur að InnSæi Signature Alumni samfélaginu eftir útskrift.

 

Hvað breytist við að taka námskeiðið?

  • Þú veist hvað innsæi er og hvernig þú átt að nota það.
  • Skilvirkari og skýrari ákvarðanataka, líka þegar gögn skortir.
  • Betri forgangsröðun í upplýsingaóreiðu og undir pressu.
  • Athyglin þín verður hluti af þínu leiðtogaforskoti
  • Meira traust á eigin dómgreind.
  • Öflugri greiningargeta. Þú blandar fimlega saman rökhugsun, greiningu og innsæi í fjölbreyttum aðstæðum.
  • Meiri sköpunarkraftur
  • Aukin tilfinningagreind og sjálfsþekking
  • Leiðtogaforskot á tímum gervigreindar, óvissu og örra breytinga
  • Þú verður meira þú sjálf/ur. Þetta er erfiðast að festa fingur á í texta, en nokkuð sem leiðtogar nefna ítrekað.

Hvað tek ég með mér?

  • Þú býrð til þinn eigin InnSæi Prófíl, þinn innri áttavita sem þú tekur með þér og styður þig við löngu eftir að námskeiðinu lýkur. InnSæi Prófíllinn kortleggur þitt InnSæi, hvernig þú ert best stillt/ur inn á InnSæið, hverju það skilar þér í lífi og starfi, hvar þú hefur tilhneigingu til að fara af leið og hvað kippir þér til baka á réttan kjöl.
  • Útskriftarskírteini (að gefnum skilyrðum). Sem staðfestir ekki bara að þú hafir sinnt náminu af heilum hug, heldur sért betur undir það búin/n að stjórna og leiða á tímum gervigreindar og ólgu.
  • Þú upplifir breytt hugsanamunstur og opnari möguleikavídd. Þú ert í tengslum við sjálfa/n þig, aðra og umhverfið á nýjan hátt.

Er þetta námskeið fyrir þig?

Ef þú ert ekki viss, þá skaltu endilega senda mér línu á hallo@hrundgunnsteinsdottir.com. Þú getur sent mér spurningar eða bókað hálftíma spjall með mér í síma eða á zoom, til að kanna hvort þetta sé rétta næsta skref fyrir þig.

Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf forvitni, opinn huga og vilja til að ögra fyrirfram gefnum viðhorfum um bæði þitt innsæi og þína möguleika. Til að ná tilætluðum árangri þarftu að æfa innsæis-vöðvann. Án iðkunar á meðan á námskeiðinu stendur verður árangur takmarkaður. Þú ert eina manneskjan sem getur verið sérfræðingur í þínu innsæi. Innsæið vex með æfingunni. 

Þú þarft að hafa dagbók við höndina, sem er algjört lykilatriði til að skerpa og stilla inn á innsæið.

Bók Hrundar InnSæi: heal, revive and reset with the Icelandic art of intuition, er grunnlesefni í námskeiðinu. Bókina má finna í bókabúðum á Íslandi og hjá öllum helstu bóksölum á netinu. Athugið að bókin er skrifuð á ensku og hefur ekki enn komið út í íslenskri þýðingu.

Fjárfestu í þér með skuldbindingu til náms og vaxtar.

Námskeiðið er styrkhæft hjá Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks, hjá VR og fleiri stéttarfélögum. Þú skalt kynna þér vel styrki sem starfsmennasjóður þíns stéttafélags veitir félagsmönnum. Kynntu þér einnig möguleika á vefgáttinni Áttin.

Námskeiðið uppfyllir skilyrði Vinnumálastofnunar fyrir styrk.

Við viljum vekja athygli á að þátttakandi sem hættir í námskeiði hefur ekki rétt á endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum. Ef þátttakandi þarf að hætta við þátttöku þarf afskráning að berast á netfangið hallo@hrundgunnsteinsdottir.com ekki síðar en 7 dögum áður en námskeiðið hefst. Berist afskráning of seint eða ekki látið vita áskiljum við okkur rétt til að innheimta námskeiðsgjöldin að fullu.

Reynsla fyrri þátttakenda:

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
Þátttakendur meta námskeiðið undantekningarlaust til 5 af 5 og segja allir að það hafi staðið undir væntingum eða farið fram úr þeim.

„Innsæi er ekki andstæða aga og fagmennsku — það er það sem hjálpar leiðtogum að hugsa skýrar, bregðast við af meiri ábyrgð og vera mannlegir.“

— Vesna Lucca, Conscious Business Strategist, stofnandi Corporate Unplugged og umsjónarkona Unplugged Forum Podcast

„Það hjálpar mér að taka ákvarðanir á skilvirkari hátt, á skipulagðan og agaðan máta, í því krefjandi, síbreytilega og hraða umhverfi sem ég starfa í á hverjum degi. Það hjálpar mér að taka ákvarðanir með minni hugrænni áreynslu, halda meiri yfirvegun og sjá skýrar.“

— Brynja Dröfn Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á bráðamóttöku

„Ég lærði meira en ég bjóst við — ekki bara um InnSæi, heldur líka um traust, ákvarðanatöku og hvernig ég sé bæði núið og framtíðina.“

— April Rinne, Change Navigator, framtíðarfræðingur og metsöluhöfundur

Algengar spurningar

Hvorutveggja.

InnSæi Signature námskeiðið skammtar þér efni vikulega sem þú horfir/hlustar á og vinnur með í eigin tíma.

Í hverri viku hittumst við (Hrund og samnemendur) á zoom fundi.

Haustið 2026 verða zoom fundir á miðvikudögum kl. 12-13.

Til að fá útskriftarskírteini þurfa þátttakendur að hafa lokið öllum námshlutum, kjarnaverkefnum og sótt að minnsta kosti 80% af kennslustundum í beinu streymi.

Eftir að þú hefur skráð þig færðu tölvupóst með innskráningarupplýsingum og næstu skrefum. 

Þann dag sem námskeiðið hefst (16. september) færðu aðgang að fyrstu vikunni.

Þú hefur aðgang í 12 mánuði frá fyrsta degi námskeiðsins.

Já. Þú færð endurgjöf í beinu Zoom-tímunum og þér er líka alltaf velkomið að senda tölvupóst ef þú ert með spurningar eða vangaveltur. Samskiptin eru mannleg og ígrunduð — ekki flýtt eða yfirborðskennd.

Hver og einn þarf að skrá sig sérstaklega. Þannig fær allir sitt eigið aðgengi, innskráningu og upplýsingar um námskeiðið. Þetta hjálpar líka til við að halda rýminu persónulegu og jarðtengdu.

Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd. Ef þú þarft að hætta við þátttöku, vinsamlegast sendu tölvupóst á hallo@hrundgunnsteinsdottir.com að minnsta kosti 7 dögum áður en námskeiðið hefst. Með skráningu samþykkir þú þessa skilmála, svo gott er að taka smá stund og athuga dagatalið og orkuna áður en þú skuldbindur þig.

Deila

Námskeið í sama dúr

Innsaei Signature Course Feature image

The Signature InnSæi Course Jan+September 2026

Já, ég hef áhuga á næsta InnSæi Signature Námskeiði

Þú færð sent sérstakt snemmtilboð áður en við opnum formlega fyrir skráningar aftur.

Já, ég hef áhuga á næsta InnSæi Signature Námskeiði.

Þú færð sent sérstakt snemmtilboð áður en við opnum formlega fyrir skráningar aftur.

Keep In Touch

Grow your intuition through the lens of InnSæi. Find insights, inspiration & tips on intuition that you won’t read anywhere else.

Keep In Touch

Grow your intuition through the lens of InnSæi. Find insights, inspiration & tips on intuition that you won’t read anywhere else.

OR