[cs_content][cs_section parallax=”false” style=”margin: 0px;padding: 25px 0px 10px;”][cs_row inner_container=”false” marginless_columns=”false” style=”margin: 0px auto;padding: 0px;”][cs_column fade=”false” fade_animation=”in” fade_animation_offset=”45px” fade_duration=”750″ type=”2/3″ style=”padding: 0px;”][cs_text]
INNSÆI – THE SEA WITHIN
Heimildarmyndin InnSæi – the Sea within kom út um mitt ár, en við Kristín erum leikstjórar, ég skrifa handrit og Kristín er framleiðandi.
InnSæi dreifist um heiminn á Netflix…

Þá bárust þau frábæru tíðindi að InnSæi verður sýnd á Netflix í Bandaríkjunum frá og með 1. febrúar 2017.
Sýnd í bestu háskólum heims
InnSæi var einnig sýnd í Stanford háskóla í Bandaríkjunum, Oxford Said Business School í Bretlandi og í Yale háskóla í Bandaríkjunum.
Í hverri viku fáum við skilaboð frá fólki alls staðar að, sem hefur séð myndina og lýsir yfir þeim áhrifum sem hún hefur haft á það, býður til samstarfs eða vill skiptast á þekkingu og hugmyndum.
InnSæi var valin af gagnrýnanda Morgunblaðsins sem 2. besta mynd ársins 2016.

Því má segja að fyrir mig persónulega sé InnSæi afrakstur margra ára rannsóknar- og hugmyndarvinnu og það fylgdi því mikil gleði að fylgja myndinni úr hlaði sl. sumar.
YALE GREENBERG WORLD FELLOW 2016

Að gefa og þiggja
Ég dvaldi í Yale háskóla í góðu yfirlæti í fjóra mánuði. Prógrammið er annars vegar leiðtoganámskeið fyrir okkur sem veljast í hópinn. Vikulega komu til okkar framúrskarandi hugsuðir og leiðtogar sem deila með okkur sérþekkingu sinni og innsýn inn í samtímann. Við vorum þjálfuð í framkomu í fjölmiðlum, framsögu og fengum markþjálfun alla önnina, bæði sem hópur og einstaklingar. Við gátum valið úr 5000 námskeiðum sem kennd eru í Yale og vorum mikið í því að hitta nemendur og kennara og skiptast á þekkingu og ráðum.
Við höfðum það hlutverk einnig að ‘mentora’ nemendur í Yale. Fyrir hvert og eitt okkar unnu fjórir nemendur, sem hjálpuðu okkur við að undirbúa og auglýsa viðburði og fyrirlestra þar sem við lékum lykilhlutverk, við ræddum mikið saman og heima og geima, við kynntumst fleiri nemendum í Yale og lífinu í skólanum í gegnum þau.
Þrettán fyrirlestrar og pallborð
Ég hélt þrettán fyrirlestra og erindi og fór í útvarpsviðtal á útvarpsstöðinni WNPR í Connecticut. Þetta var frábær tími til að taka saman þau ólíku störf og verkefni sem ég hef unnið að sl. 17 ár. Vinna úr reynslunni, setja hana í enn og betra samhengi fyrir það sem er framundan. Umræðuefnin sem ég fjallaði um endurspegluðu minn breiða og fjölbreytta bakgrunn. Uppbyggingastarf eftir stríð, jafnréttismál, mannréttindamál, frumkvöðla- og nýsköpunarstörf, kvikmyndagerð, leikritaskrif, ljóðagerð, handritagerð, ráðgjafastörf, menntaverkefni, kennslu, ofl., en fréttir af öllum þessum fyrirlestrum er að finna í ‘news’ flokknum á þessari síðu á tímabilinu ágúst til desember 2016.
Ómetanlegt tækifæri

TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR
Framlag ríkisins til Tækniþróunarsjóðs (TÞS) tvöfaldaðist í upphafi árs 2015. Sama ár tók ný stjórn við og ég varð stjórnarformaður sjóðsins. Stærð sjóðsins er nú um það bil 2,3 milljarðar króna og vorið 2016 var stærsta úthlutunin til þessa, eða rúmlega 800 milljónir króna.
Ný stefnumótun tekin í framkvæmd á árinu

[x_blockquote type=”left”]Stærð sjóðsins er nú um það bil 2,3 milljarðar króna og vorið 2016 var stærsta úthlutunin til þessa, eða rúmlega 800 milljónir króna.[/x_blockquote][/cs_text][/cs_column][cs_column bg_color=”hsla(0, 14%, 63%, 0)” fade=”false” fade_animation=”in” fade_animation_offset=”45px” fade_duration=”750″ type=”1/3″ style=”padding: 28px 0px 0px;”][x_share title=”Share this Post” share_title=”” facebook=”true” twitter=”true” google_plus=”false” linkedin=”true” pinterest=”false” reddit=”false” email=”true” email_subject=”Hey, thought you might enjoy this! Check it out when you have a chance:”][/cs_column][/cs_row][/cs_section][cs_section bg_color=”hsla(0, 36%, 74%, 0)” parallax=”false” style=”margin: 0px;padding: 0px 0px 45px;”][cs_row inner_container=”false” marginless_columns=”false” bg_color=”hsla(0, 29%, 81%, 0)” style=”margin: 0px auto;padding: 0px;”][cs_column fade=”false” fade_animation=”in” fade_animation_offset=”45px” fade_duration=”750″ type=”2/3″ style=”padding: 0px;”][x_line class=”pbn” style=”border-top-color: #b75e08;border-top-width: 2px;”][x_custom_headline level=”h2″ looks_like=”h3″ accent=”false” class=”pbm”]More News[/x_custom_headline][x_recent_posts type=”post” count=”3″ offset=”” category=”news” orientation=”horizontal” no_sticky=”true” no_image=”false” fade=”false” class=”pbl”][x_button type=”transparent” shape=”rounded” size=”global” block=”false” circle=”false” icon_only=”false” href=”https://www.hrundgunnsteinsdottir.com/category/news/” title=”” target=”” info=”none” info_place=”top” info_trigger=”hover” info_content=”” style=”float: right;”]all posts in news[/x_button][/cs_column][cs_column fade=”false” fade_animation=”in” fade_animation_offset=”45px” fade_duration=”750″ type=”1/3″ style=”padding: 0px;”] [/cs_column][/cs_row][/cs_section][/cs_content]
